Börnin þekkja muninn á góðu og íllu

Ómar Örn | 28. January, 2009

Það er nokkuð ljóst að ég nenni ekki að skrifa um ríkisstjórnarskipti enda eru aðrir betur til þess fallnir, þannig að ég held mér á grínhliðinni!

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 3 ummæli »

Myndatexti

Ómar Örn | 27. November, 2008

Ég áttaði mig ekki á því hvað þessi frétt var um nema fyrir sakir myndatextans…

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | Rita ummæli »

James Bond: The Fourth Cod War

Ómar Örn | 14. November, 2008

ást og virðing
Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | Rita ummæli »

1 down and ALOT to go!

Ómar Örn | 11. November, 2008

Það eru merkilegar fréttir að gerast þessa stundina í pólitíkinni. Bjarna Harðar hefur sagt af sér vegna tölvupóstsendingar! Þegar maður hugsar þetta þannig þá er þetta kannski ekki merkileg ástæða miðað við afglöp annarra ráðamanna þjóðarinnar sem sitja enn við lýði í hæstu hæðum. Nú ættu fleiri að taka Bjarna sér til fyrirmyndar og segja af sér! En það er óskhyggja sem ekki á eftir að rætast.

ást og virðing
Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | Rita ummæli »

Hvar var þessi fréttaflutningur um mótmælin???

Ómar Örn | 10. November, 2008

Ég horfði á fréttir á laugardaginn og þar sá ég umfjöllun um mótmælin fyrir framan Alþingishúsið, en það sem mér og öðrum bar fyrir sjónir voru einhverjir 5-10 mótmælendur sem voru að slá til lögreglu og voru með leiðindi. En hvað voru hinir 4000 mótmælendurnir að gera? Jú, vélhjólasamtök ákváðu að spóla og fylla allt af reyk, aðrir stóðu með skilti og öskruðu hvar er Geir. Afhverju var okkur ekki sýnt þessi “friðsamlegu mótmæli” ??? Afhverju fáum við bara að sjá apakettina sem eru með leiðindi? Það er kominn tími á að fréttastofur taki sig til í andlitinu og segi almennilega frá!

ást og virðing
Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 3 ummæli »

Nýr CD Pottþétt Kreppa!

Ómar Örn | 31. October, 2008

Gefin hefur verið út nýr safndiskur í kreppunni - í hinni geysivinsælu Pottþétt diskaröð.
Diskurinn heitir ‘Pottþétt kreppa’ og er útgáfa hans styrkt af Glitni, Kaupþing og Landsbankanum í sameiningu.

Lagalisti:
1. Hjálpaðu mér upp - NýDönsk
2. It’s a hard life - Queen
3. Can’t walk away - Herbert Guðmundsson
4. The winner takes it all - ABBA
5. Er nauðsynlegt að skjóta þá - Bubbi Morthens
6. I need a miracle - Fragma
7. Á tjá og tundri - Sálin hans Jóns míns
8. Run to the hills - Iron Maiden
9. Hamingjan er krítarkort - GCD
10. I’m going down - Bruce Springsteen
11. Þau falla enn - Síðan skein sól
12. Ég vil fá að lifa lengur - Todmobile
13. All by myself - Eric Carmen
14. Sirkus Geira Smart - Spilverk þjóðanna
15. Highway to hell - AC/DC
16. Til hamingju Ísland - Silvía Nótt
17. Exodus - Bob Marley

(þetta fékk ég sent via tölvupóst)

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | Rita ummæli »

Davíð Oddson og Geir Haarde

Ómar Örn | 31. October, 2008

Davíð Oddson og Geir H. Haarde sitja saman í flugvél á leiðinni til Akureyrar.

Davíð segir: ” Ef ég hendi 1000 krónum út um gluggann þá myndi ég gleðja eina manneskju í kreppunni”!

Geir svarar: ” Ef ég myndi henda 10.000 krónum út um gluggann þá myndi ég gleðja 10 manneskjur í kreppunni”!

Flugstjórinn hafði heyrt tal þeirra félaga og segir við þá ” Ef ég myndi henda ykkur báðum út um gluggann, þá myndi ég gleðja BJARGA HEILA ÞJÓД!

(þetta fékk ég sent í gegnum smáskilaboð)

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 3 ummæli »

Skemmtilegt myndband frá Baggalút

Ómar Örn | 16. September, 2008

þetta er ábyggilega hundgamalt en skemmtilegt er það allavegana

ást og virðing
Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 1 ummæli »

Að geta heimilda!

Ómar Örn | 1. September, 2008

Ég var að velta fyrir mér afhverju enginn hjá mbl.is getur heimilda á því hvar þeir finna fréttirnar sínar.  Eyjan.is gerir það, blaðamenn Vísis eru byrjaðir að gera það meira og meira, en mbl.is gerir það ekki að staðaldri eins og til að mynda þessi frétt! Ég er búinn að fylgjast með þessari frétt síðan í sumar og skoða fjöldann allan af síðum sem þessi frétt ætti að koma fram en hef hvergi séð hana. Hvaðan fékk blaðamaður þá frétt að jaml, japl og fuður hefði átt sér stað og Berbatov væri á leiðinni í læknisskoðun og félögin hafa komist að kaupverði og hann væri að fara að skrifa undir 4 ára samning????

Er ekki kominn tími á að fréttamenn geti heimilda á því hvar þeir finna fréttir svo hægt sé að lesa frumheimildina af henni? Mér fyndist að það ætti ekki að vera mikið mál! Nema að sjálfsögðu að fréttamaður sé að búa þetta til!

Hannes Hólmsteinn fékk að kenna á því að geta ekki heimilda!

ást og virðing
Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | Rita ummæli »

Til hamingju strákar

Ómar Örn | 22. August, 2008

Þetta er einhver besti íþróttadagur landsins og því ber að fagna fram á sunnudag og jafnvel lengur.  Sjáumst á öldurhúsum borgar óttans GLEÐINNAR

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Íþróttir | 2 ummæli »

léleg fréttamennska

Ómar Örn | 22. August, 2008

Skemmtilegt hvað íslenskir blaðamenn nenna lítið að pæla í hlutum þegar þeir hafa lítinn áhuga á því sem verið er að skrifa um.  Þessi frétt hér að neðan er dæmi um það.

Fréttamaður þýðir fréttina beint af ensku og pælir ekkert hvort verið sé að nota rétt íslenskt orð yfir hluti

Hérna þýðir hann fimleikaáhaldið tvíslá sem misháar slár e. “uneven bars”

sem fimleikaunnanda finnst mér þetta léleg fréttamennska

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fimleikar fá “vitlausa” umfjöllun í fréttamiðlum.  Spurning um að fréttamenn þá aðallega íþróttafréttamenn kynni sér allar íþróttir til þaula svo hægt sé að segja rétt frá.

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 2 ummæli »

Ævintýri

Ómar Örn | 21. August, 2008

SHORTEST FAIRY TALE

Once upon a time, a guy asked a girl “Will you marry me?” The girl said,
“NO!” And the guy lived happily ever after and went fishing, hunting and
played golf a lot and drank beer and farted whenever he wanted.

THE END

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 1 ummæli »

Frí á föstudaginn

Ómar Örn | 20. August, 2008

Það er á hreinu að vinnuveitendur þurfa að mæta vilja þjóðarinnar og gefa tveggja tíma frí á föstudaginn frá hádegi til tvö.  Í raun væri það brottrekstrarsök ef menn taka sér ekki frí á meðan undanúrslitaleikurinn stendur yfir.  Sá sem hringir í mig á meðan leiknum stendur á von á bííííb.

ÁFRAM ÍSLAND

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 3 ummæli »

DV skýtur púðurskotum á Moggann

Ómar Örn | 15. August, 2008

Skemmtilegt að lesa helgarblað DV í dag.  Á síðu 4 í sandkornum er verið að hrauna yfir Morgunblaðið vegna leiðréttinga sem blaðið hefur verið að skrifa undanfarið.

þar segir m.a “Virtasta blað Íslands,Morgunblaðið er ekki svipur hjá sjón þetta sumarið. Leiðréttingar eftir leiðréttingar birtast nú í blaði allra landsmanna.  Ekki lýgur mogginn, er trúlega frasi sem flestir hafa heyrt.  Nú er svo komið að ritstjórn blaðsins þekkir ekki muninn á þessum fugli og hinum fuglinum”

Gott og vel að DV finnur eitthvað að samkeppnisaðila sínum á dagblaðamarkaðnum…

…EN neðst á þessari sömu síðu er jú leiðrétting frá DV þar sem þeir höfðu rangt eftir Regínu Ástvaldsdóttur skrifstofustjóra borgarstjóra. Þá halda sumir að þetta sé búið, en nei með þessu líka skemmtilega sandkorni DV manna þá er mynd af Styrmi Gunnarssyni fyrrverandi ritstjóra moggans ekki núverandi ritstjóra Ólafi Stephensen.

Já svona er að þekkja muninn á þessum fugli og hinum fuglinum!

við sjáum myndir

Til Hamingju með þetta DV!

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 1 ummæli »

Margræðin fyrirsögn

Ómar Örn | 15. August, 2008

Skemmtilegt hvað fyrirsagnir á fréttum geta verið skemmtilegar þegar maður hefur hugarflug. Það var einmitt verið að hlæja að þessu á skrifstofunni rétt áðan.

Þau fá klárlega óskar-inn fyrir klækjastjórnmál

ást og virðing

Ómar Örn

Flokkar: Hversdagsrúnk | 1 ummæli »


Teikning: Halldór Baldursson

Eldra Blogg